Vetrar Paralympics í Milano Cortina 2026 hefjast formlega í dag.
06.03.2026
Vetrar Paralympics í Milano Cortina 2026 hefjast formlega í dag, 6. mars, og mun Arna Sigríður Albertsdóttir keppa fyrir Íslands hönd í skíðagöngu. Hún verður fyrsta íslenska konan til að keppa í greininni á leikunum en hún tók einnig þátt á Sumar Paralympics í handahjólreiðum í Tókýó 2020 (2021).
Arna keppir í tveimur greinum og verða þær báðar sýndar í beinni útsendingu á RÚV:
- 10. mars – Sprettur kl. 10:25 (09:25 að íslenskum tíma)
- 11. mars – 10 km ganga kl. 09:45 (08:45 að íslenskum tíma)
Keppnisstaðurinn er Tesero Cross‑Country Skiing Stadium en íslenski hópurinn hefur komið sér vel fyrir í Paralympic‑þorpinu í Predazzo þar sem undirbúningur gengur vel og stemningin er góð.
Fylgjast má með undirbúningi og lífinu í þorpinu á Instagram‑síðu Íþróttasambands fatlaðra: https://www.instagram.com/npciceland/
Saga íslenskra þátttakenda
Saga Íslands á Vetrar‑Paralympics nær aftur til ársins 1994, þegar Svanur Ingvarsson keppti fyrstur Íslendinga í Lillehammer. Á eftir honum fylgdu Erna Friðriksdóttir og Jóhann Þór Hólmgrímsson á leikunum 2010 og 2014 og Hilmar Snær Örvarsson keppti bæði 2018 og 2022. Nú verður Arna fimmti Íslendingurinn til að taka þátt á leikunum. Lesa má nánar um söguna hér: https://hvatisport.is/arna-fimmti-islendingurinn-a-vetrar-paralympics/
Við óskum Örnu góðs gengis á leikunum og hlökkum til að fylgjast með henni á brautinni.