Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

2

Fræðsla um bókhald og ársreikning - 4. mars!

02.03.2026

 

ÍSÍ og UMFÍ standa fyrir stuttu netfræðsluerindi um grunnatriði í bókhaldi og uppbyggingu ársreikninga, fyrir starfsfólk og stjórnendur sambandsaðila og aðildarfélög þeirra.

Fræðsluerindið verður flutt tvisvar sinnum miðvikudaginn 4. mars, annars vegar á milli kl. 12:00 - 13:00 og aftur á milli kl. 20:00 - 21:00.

Á meðal þess sem farið verður yfir:

  • Lög um bókhald
  • Framsetning og innihald ársreikninga
  • Leiðbeiningar um fjármál íþróttahreyfingarinnar.
  • Leiðbeiningar um skattskyldu.
  • Gerð fjárhagsáætlana.
  • Almannaheillaskrá Skattsins.

Smelltu hér til að skrá þig til leiks:  Skráning á fræðsluerindi