Lífshlaupinu lýkur á morgun, 28. febrúar
27.02.2026
Nú er einungis 1 dagur eftir af Lífshlaupinu þar sem síðasti dagur sem telur er 28. febrúar. Það verður hins vegar hægt að koma tölum inn í kerfið fram til kl. 12:00 á hádegi, mánudagsins 2. mars. Eftir það lokast kerfið og engu hægt að breyta. Staðan verður því ekki rétt fyrr en eftir hádegi þann dag.
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins verður síðan 3. mars og hefst kl. 12:10, í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, 3. hæð (B og C salur).
Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti í hlutfalli daga og mínútna í öllum flokkum en í Grunnskólakeppninni (nemendur) eru einungis veitt verðlaun fyrir hlutfall daga.
Nánar um útreikning á tímafjölda:
Til að útreikningar séu réttir þá þarf heildarfjöldi starfsmanna vinnustaða/skóla að vera rétt skráður. Það er ekki rétt að skrá einungis þá sem taka þátt í Lífshlaupinu.
Hér má sjá útskýringu á útreikningi:
Liðin raðast upp í röð eftir hlutfalli daga en hægt er að raða þeim upp eftir hlutfalli mínútna líka með því að smella á þátttökuhlutfall sem er lengst til hægri.
Til að dagurinn telji í Lífshlaupinu þurfa einstaklingar 16 ára og eldri að skrá fullar 30 mínútur en börn 15 og yngri að skrá 60 mínútur. Endilega fara yfir daga og tíma.
Skráningar- og myndaleikur:
Á meðan Lífshlaupið stendur yfir hafa verið bæði úrdráttarverðlaun alla virka daga sem og myndaleikur á samfélagsmiðlum. Í skráningar- og myndaleik fá þátttakendur glaðning frá Mjólkursamsölunni, Heilsa.is, Skautahöllinni í Laugardal, Skautahöllinni á Akureyri, Klifurhúsinu, Primal Iceland, Unbroken. Lemon og Sánagus Reykjanes
Eigandi "Bestu myndarinnar" verður látinn vita mánudaginn 2. mars og enn hægt að senda inn góða mynd/myndbrot úr átakinu.
Allir vinningshafar hafa verið lesnir upp í þættinum Morgunverkin á Rás 2 og nöfn sett inn á heimasíðu Lífshlaupsins undir vinningshafar. Til að taka þátt í myndaleik þarf að merkja myndir/myndbrot með @lifshlaupid, #lifshlaupid og/eða hlaða inn efni hér.
Nánari upplýsingar gefa Linda Laufdal og Hansína Þóra gunnarsdóttir, starfsmenn Fræðslu- og almenningsíþróttassviðs ÍSÍ á lifshlaupi@isi.is eða í síma 514-4000
Takk fyrir að taka þátt!