17,1 milljón króna úthlutað vegna kostnaðarþátttöku ungmenna í landsliðsstarfi
27.02.2026
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi sínum 25. febrúar sl. styrkupphæðir til sérsambanda ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ungmenna á þeirra vegum vegna þriðja ársþriðjungs ársins 2025, alls kr.17,1 m.króna.
20 sérsambönd ÍSÍ staðfestu mótaþátttöku ungmenna á þriðja ársþriðjungi og hljóta þau öll styrki. Fjöldi styrkhæfra móta á þriðjungnum voru 96. Er styrkurinn greiddur til sérsambanda og þau skuldajafna á móti kostnaði ungmenna hafi þau ekki greitt sinn kostnaðarhluta eða endurgreiða til ungmenna hafi þau þegar greitt. Úthlutunin byggir á úthlutunarreglum og viðmiðum sem samþykkt voru af framkvæmdastjórn ÍSÍ og útreikningurinn byggir á upplýsingum úr umsóknum sérsambanda ÍSÍ í Afrekssjóð ÍSÍ.
Samantekt ársins 2025
- 27 sérsambönd ÍSÍ af 34 voru með ungmenni sem greiddu fyrir landsliðsþátttöku á árinu og fengu þau öll styrki.
- Fjöldi styrkhæfa móta á árinu voru 208.
- Fjöldi styrkhæfra keppenda voru 1.122 (keppendur sem taka þátt í fleiri en einu móti teljast pr. mót).
Af þeim fjölda voru 207 sem hlutu einnig styrk til að ferðast frá heimili að brottfararstað vegna þátttöku í landsliðsstarfi.
Heildarupphæð slíkra styrkja á árinu voru samtals 3,3 m.króna.
Heildarstyrkir ársins 2025 nema 78,5 m.króna. Heildarkostnaður ungmenna við landsliðsþátttöku á árinu var 209,3 m.króna. Styrkhlutfall ársins var því 37,5%.
Meginmarkmið styrkveitinganna er að styðja fjárhagslega við ungmenni sem taka þátt í landsliðsstarfi á vegum sérsambanda ÍSÍ og þurfa að greiða kostnað vegna þátttökunnar að fullu eða að hluta. Þá er markmiðið einnig að jafna möguleika ungmenna á þátttöku í landsliðsstarfi sérsambanda ÍSÍ.