Ókeypis tveggja vikna námskeið í Ólympíu í sumar!
19.02.2026
Búið er að opna fyrir umsóknir um þátttöku á tveggja vikna námskeiði í Ólympíu í Grikklandi (66 International Session for Young Olympic Ambassors )sem haldið verður í sumar.
Umsókn er opin einstaklingum sem hafa náð góðum árangri í íþróttum eða starfað innan íþróttahreyfingarinnar, t.d. sem kennarar, þjálfarar, dómarar eða í félagsstörfum, auk þess að sýna áhuga á málefnum Ólympíuhreyfingarinnar. Tveir einstaklingar verða valdir úr hópi umsækjenda. Frábært tækifæri til að kynnast fólki allsstaðar úr heiminum sem hefur brennandi áhuga á íþróttum og fræðslu.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auglýsir því eftir tveimur þátttakendum á aldrinum 20–30 ára til að vera fulltrúar ÍSÍ á námskeiðinu, sem fer fram dagana 6.–18. júní 2026 bæði í Aþenu og Ólympíu. Þema námskeiðsins í ár er „ Empowering Inclusion, Integrity and Responsibility for Every Athlete “.
Fræðslan fer fram í formi fyrirlestra, hópavinnu, fræðsluferða og íþróttaþátttöku. Þátttakendur bera ekki neinn kostnað – flug, gisting og fæði eru greidd af ÍSÍ og Ólympíuhreyfingunni.
Skilyrði fyrir þátttöku:
- Gott vald á ensku og/eða frönsku.
- Vera á aldrinum 20 – 30 ára.
- Vera góð fyrirmynd og sýna jákvætt viðhorf.
Umsóknarfrestur er til kl.12:00 (hádegi) 25. febrúar 2026.
Skráning fer fram í gegnum þennan hlekk en einnig er hægt að skanna QR kóðann hér fyrir neðan til að komast inn í skráningarformið.
Tilvitnun í reynslusögu frá þátttakanda:
„Tíminn í Grikklandi er ævintýri sem ég mun aldrei gleyma. Í fluginu til Aþenu hugsaði ég með mér, „Hvað er ég búinn að koma mér út í?“, með smá kvíðahnút í maganum. En um leið og við Melkorka löbbuðum út úr flugstöðinni, í sól og blíðu, breyttist kvíðinn í spenning.
Dagskráin hófst á þægilegan og fjölbreyttan hátt og samhliða kynntumst við hinum þátttakendum hægt og rólega. Sumir voru fyrrum ólympíufarar, aðrir sérfræðingar á sínu sviði, en margir voru að taka sín fyrstu skref á þessum vettvangi. Aðalatriðið var að hafa gott hugarfar, vera opin/n fyrir nýjum hlutum og njóta.
Það sem stendur upp úr frá ferðalaginu eru þær tengingar sem ég myndaði í Ólympíu. Ég er enn í reglulegum samskiptum við þá sem voru með mér úti – suma tala ég við daglega. Við styðjumst við í okkar verkefnum og skipuleggjum framtíðarferðalög sem hópur. Auk þess lærði ég mikið, bæði um Ólympíuhreyfinguna og sjálfan mig. Þetta var ótrúlega skemmtilegt!
Ég mæli hiklaust með því að sækja um 😊“
– Sveinn Samsted, þátttakandi 2024
Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ (ragnhildur@isi.is).