Sundsamband Íslands 75 ára
18.02.2026
Föstudaginn 13. febrúar síðastliðinn hélt Sundsamband Íslands (SSÍ) upp á 75 ára afmæli sambandsins í hátíðarsal Knattspyrnufélagsins Þróttar í Laugardal. Á hátíðinni var kastljósinu beint á sjálfboðaliða, sögu og samfélag. Sérstaka athygli vakti útnefning Viktoríu Gísladóttur sem Íþróttaeldhuga og sjálfboðaliða 75 ára afmælisárs SSÍ.
Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ ávarpaði samkomuna ásamt Birni Sigurðssyni formanni SSÍ, Óskari Þór Ármannssyni teymisstjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu sem var staðgengill ráðherra á hátíðinni, Þórði Árna Hjaltested formanni Íþróttasambands fatlaðra og Fríðu Kristínu Jóhannesdóttur varaforamanni Sundfélags Hafnarfjarðar.
Willum Þór sæmdi Björn Sigurðsson, formann SSÍ, Gullmerki ÍSÍ, samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Björn hefur verið sjö ár sem formaður SSÍ en var þar á undan gjaldkeri stjórnar. Hann kemur úr sundhreyfingunni í Hafnarfirði.
SSÍ heiðraði fjölmarga einstaklinga á hátíðinni og má lesa nánar um þær heiðranir á heimasíðu SSÍ.
Myndir með frétt: Willum Þór Þórsson, Björn Sigurðsson, Ingibjörg Helga Arnardóttir, Andri Stefánsson, Guðmundur Þ Harðarson, Ragna María Ragnarsdóttir og Viktoría Gísladóttir


