Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
28.02.2026 - 28.02.2026

Ársþing KSÍ 2026

Ársþing KSÍ verður haldið á Hótel Valaskjálf...
13

Lífshlaupið hálfnað og þátttökumet þegar slegið!

13.02.2026

 

Lífshlaupið 2026 er komið vel af stað og þátttakan hefur aldrei verið meiri. Alls hafa 18.679 manns skráð sig til leiks og þar með er ljóst að heildartalan frá síðasta ári, 18.606 þátttakendur, hefur þegar verið toppuð. 

Verkefnið hefur greinilega náð vel til fólks og margir hafa fundið skemmtilegar leiðir til að koma hreyfingu inn í daginn. Á vinnustöðum hefur starfsfólk útfært hreyfingu á ýmsa vegu, meðal annars með hlaupabrettum við skrifborð þar sem erfitt er að komast frá. Einnig eru margir farnir að nýta stuttar ferðir, til dæmis í búð, til að safna hreyfimínútum. Í einum framhaldsskóla var ákveðið að halda íþróttatíma á skautasvelli, sem vakti mikla ánægju og varð til þess að nemendur héldu áfram að skauta langt fram eftir kvöldi.

Myndefni sem hefur borist á samfélagsmiðlum sýnir vel hversu ólíkar leiðir þátttakendur hafa fundið til að hreyfa sig. Það má sjá að verkefnið hefur fengið góðar undirtektir og hvatt fólk til að huga betur að daglegri hreyfingu.

Enn er nægur tími til að skrá sig og taka þátt. Skráning fer fram á lifshlaupid.is, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verkefnið. Í boði eru vinningar, en sá sem mestu máli skiptir er ávinningurinn sem regluleg hreyfing hefur á heilsu og líðan.