Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
28.02.2026 - 28.02.2026

Ársþing KSÍ 2026

Ársþing KSÍ verður haldið á Hótel Valaskjálf...
9

Opið fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar

09.02.2026

 

Opið er fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar og verður hægt að senda inn umsóknir í sjóðinn til 15. mars næstkomandi. Þetta er fyrsti umsóknarfrestur ársins 2026. 

Sjóðurinn tók til starfa á síðasta ári. Þá hlutu 154 verkefni styrk upp á samtals 86,6 milljónir króna. 

Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar geta eftirtaldir aðilar innan ÍSÍ og UMFÍ sótt um:

  • Íþróttahéruð.
  • Íþróttafélög og/eða deildir þeirra.
  • Sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög og/eða deildir félaga.

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis.

Hvatasjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:

  • Auka útbreiðslu og þátttöku barna í íþróttum.
  • Efla þátttöku barna með fötlun.
  • Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum.
  • Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Í umsókn skal meðal annars tilgreina:

  • Lýsingu á verkefninu og markmiðum þess.
  • Rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði.
  • Tíma- og verkáætlun.Fjárhagsáætlun verkefnisins.

Stuðlaðu að aukinni þátttöku allra barna í íþróttum – sæktu um í dag!

Úthlutunarreglur.

Senda inn umsókn hér