Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
28.02.2026 - 28.02.2026

Ársþing KSÍ 2026

Ársþing KSÍ verður haldið á Hótel Valaskjálf...
9

Ísland fær fimmta keppandann á ÓL

09.02.2026

 

Alþjóðaskíðasambandið (FIS) sendi póst á Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í gær, þar sem Íslandi var boðið eitt sæti í viðbót í alpagreinum kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó Cortína á Ítalíu. Um er að ræða endurúthlutun sæta.

Stjórn Skíðasambands Íslands (SKÍ) samþykkti ákvörðun alpagreinanefndar SKÍ um að þiggja sætið. Samkvæmt fyrri ákvörðun SKÍ liggur fyrir að varamaður er Sonja Lí Kristinsdóttir og hefur framkvæmdastjórn ÍSÍ staðfest val Skíðasambandsins. Patrick Bastini þjálfari bætist einnig við þjálfarateymi Íslands í alpagreinum kvenna.  

Sonja Lí mun því bætast við alpagreinahópinn frá Íslandi í Cortína á næstu dögum.