Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
5

Opið fyrir starfsskýrsluskil

05.02.2026

 

Búið er að opna fyrir starfsskýrsluskil í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ, á vefslóðinni www.skila.is.

Samkvæmt lögum ÍSÍ og UMFÍ þá ber öllum sambandsaðilum og félögum innan þeirra vébanda að skila starfsskýrslum fyrir 15. apríl nk.

Í febrúar og mars verður boðið upp á kynningu og fræðslu á skilum í kerfinu. Boðið verður upp á mismunandi tímasetningar.

Skil á starfsskýrslum innihalda upplýsingar um starfsemi eininga innan vébanda ÍSÍ og UMFÍ á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. nú er verið að skila skýrslum fyrir tímabilið 1. janúar - 31. desember 2025.Skila þarf upplýsingum um félagsmenn og iðkendur ásamt innslegnum upplýsingum úr ársreikningi síðasta starfsárs (2025) og upplýsingum um núverandi stjórn og starfsfólk. Einnig þarf að skila ársreikningi undirrituðum af stjórn og skoðunarmönnum á pdf-formi og núgildandi lögum í pdf-formi inn í kerfið.

Nánari upplýsingar um málið gefur Elías Atlason, sem hefur umsjón með skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ. Netfang hans er elias@isi.is.