Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
6

Vetrarólympíuleikarnir hefjast í dag!

05.02.2026

 

Vetrarólympíuleikarnir Milano–Cortina 2026 hefjast formlega í dag, 6. febrúar, og íslenski hópurinn er tilbúinn í slaginn. Við höfum áður kynnt keppendur Íslands, en hér að neðan má sjá yfirlit yfir hvar og hvenær þau keppa.

Alls senda Íslendingar fjóra keppendur til leiks í alpagreinum og skíðagöngu, og fara keppnir fram á þremur stöðum á Ítalíu; Bormio, Cortina og Predazzo.

Keppnisdagskrá:

Skíðaganga í Predazzo:

Dagur Benediktsson keppir í fjórum greinum:

  • 8. febrúar – 20 km skiptiganga (10 km klassískt / 10 km frjálst)
  • 10. febrúar – Sprettganga, klassískt
  • 13. febrúar – 10 km frjálst
  • 21. febrúar  – 50 km klassískt

Kristrún Guðnadóttir keppir í tveimur greinum:

  • 10. febrúar – Sprettganga, klassískt
  • 12. febrúar – 10 km frjálst

Alpagreinar karlar í Bormio:

Jón Erik Sigurðsson keppir í tveimur greinum:

  • 14. febrúar – Stórsvig
  • 16. febrúar– Svig

Alpagreinar kvenna í Cortina:

Elín Elmarsdóttir Van Pelt keppir í tveimur greinum:

  • 15. febrúar – Stórsvig
  • 18. febrúar – Svig

Það verður óneitanlega spennandi að fylgjast með íslensku keppendunum á Ólympíuleikunum og sjá árangurinn af langvinnum undirbúningi þeirra.

RÚV sýnir keppnir Íslendinga í beinni þannig að landsmenn geta verið með frá fyrsta spretti til síðustu sveigs.

Áfram Ísland!