Hver verður Íþróttaeldhugi ársins 2025?
30.12.2025
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), í samvinnu við Lottó, stendur fyrir kjöri á Íþróttaeldhuga ársins samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins þann 3. janúar næstkomandi. Íþróttaeldhugi ársins er valinn úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni, sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarfið í sínu nærumhverfi eða á landinu öllu.
Kallað var eftir tilnefningum úr hreyfingunni og frá landsmönnum og bárust alls 208 tilnefningar um 116 einstaklinga úr 25 íþróttagreinum. Úr röðum þeirra hefur sérstök valnefnd valið þrjá einstaklinga og mun einn þeirra hljóta heiðursviðurkenninguna Íþróttaeldhugi ársins 2025. Tilkynnt verður um úrslitin, eins og áður sagði, í hófi um kjör Íþróttamanns ársins 2025.
Valnefndin var skipuð þeim Þóreyju Eddu Elísdóttur formanni, Degi Sigurðssyni, Einari Ólafssyni, Kristínu Rós Hákonardóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur.
Þeir einstaklingar sem valnefndin valdi úr röðum tilnefninga eru í stafrófsröð:
- Árni Þór Grétarsson (handknattleikur), hefur starfað fyrir Ungmennafélag Selfoss.
- Bjarni Malmquist Jónsson (frjálsíþróttir og borðtennis), Ungmennafélaginu Vísi og formaður USÚ.
- Hugrún Hjálmarsdóttir (knattspyrna, skíði og blak) hefur starfað fyrir Íþróttafélagið Hött, samstarfsvettvanginn FHL og UÍA.
Rökstuðning úr innsendum tilnefningum má finna hér:
Eins og fram kemur í rökstuðningi úr innsendum tilnefningum þá hafa þau öll unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu íþrótta hjá sínum félögum. Mynd af þremenningunum fylgir hér í fréttinni.


