Umsóknarfrestur í Ferðasjóði íþróttafélaga rennur út 12. janúar 2026
14.11.2025
Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrk vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2025.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 12. janúar 2026.
Íþrótta- og ungmennafélög geta nú stofnað umsókn og skráð inn í hana ferðir sem hafa þegar verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu við umsóknarskilin.
Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og fær þá viðkomandi senda vefslóð.
Sú slóð gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til henni hefur verið skilað inn í gegnum kerfið í lok umsóknartímabils.
Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga.
Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á „Sækja um ferðastyrk” sem er ofarlega á síðunni. Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á „Stofna”, þá er hægt að skrá inn ferðir. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið.
Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin. Mót sem ekki birtast í fellilista eru ekki styrkhæf.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast sendið póst á Jón Reyni Reynisson hjá ÍSÍ á netfangið jon@isi.is.