„Tryggir skýr gæðaviðmið félagsins“

Sundfélagið Óðinn fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ við Sundlaug Akureyrar miðvikudaginn 15. október síðastliðinn. Það var Viðar Sigurjónsson sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ sem afhenti Ástu Birgisdóttur formanni Óðins viðurkenninguna að viðstöddu fjölmenni í blíðviðrinu á Akureyri. Á myndinni eru lengst til vinstri þau Viðar og Ásta með viðurkenninguna á milli sín og lengst til hægri er Ragnheiður Runólfsdóttir yfirþjálfari sundfélagsins og við hlið hennar Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar. Auk þess er á myndinni stór hópur iðkenda innan Fyrirmyndarfélagsins Óðins.
„Að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og viðhalda reglulegri endurnýjun tryggir að félagið setji sér skýr gæðaviðmið sem tengjast allri starfsemi þess. Þetta skapar meiri samfellu í skipulagi og eykur trúverðugleika félagsins. Sjálfboðaliðar starfa með meira öryggi og markvissu innan trausts og vel skipulagðs félags með viðurkenningu ÍSÍ. Með viðurkenningunni fær félagið opinbera staðfestingu á því góða starfi sem stjórn og þjálfarar sinna. Hún styrkir traust og ímynd félagsins og er gæðastimpill sem auðveldar samskipti við samfélagið, styrktaraðila og samstarfsaðila“, sagði Ásta Birgisdóttir formaður félagsins af þessu tilefni.