Fulltrúar ÍSÍ og UMFÍ á fundi forseta Íslands þar sem rætt var um áhrif snjalltækja og samfélagsmiðla

Fulltrúar ÍSÍ og UMFÍ voru á meðal þeirra sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, boðaði til samtals á Bessastöðum í síðustu viku með ungu fólki og ýmsum fagaðilum. Til umræðu voru áhrif snjalltækja- og samfélagsmiðla á líf og líðan barna og ungmenna.
Á fundinum var rætt um símasiði fullorðinna, stafrænan útivistartíma, öryggishlutverk símtækja og þau tvíbentu áhrif sem boð og bönn geta haft ef ekki er hugað að jákvæðri og uppbyggilegri fræðslu.
„Athyglissamfélagið, eins og farið er að kalla þá þjóðfélagsgerð sem við búum nú við, hefur að mínu mati rænt okkur innri og ytri ró, aukið bilið milli kynslóða, rofið tengsl okkar hvert við annað og snertinguna við náttúruna í kringum okkur. Við leggjum jafnvel meiri rækt við skjáinn en velferð okkar sjálfra og nánustu ættingja,“ segir meðal annars á heimasíðu forsetisembættisins.
Ákveðið var að halda umræðum um efnið áfram og hvetja til frekara samstarfs er kemur að þessum málum.
Ljósmyndir / Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, UMFÍ