Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

6

Setja markið á Vetrarólympíuleikana í Milano og Cortina 2026!

06.09.2025

 

Vetrarólympíuleikarnir fara fram 6.-22. febrúar næstkomandi. Baráttan um sæti á leikunum er hörð og það mun endanlega skýrast á nýju ári hvað Ísland mun eiga marga keppendur á leikunum.

Skíðasamband Íslands tilnefndi átta einstaklinga í Ólympíuhóp ÍSÍ en hópurinn er skipaður öflugu skíða- og snjóbrettafólki sem hefur náð eftirtektarverðum árangri undanfarin ár.

Afreksmiðstöð Íslands og Skíðasamband Íslands hafa haldið utan um hópinn og boðið upp á fræðslu og fagþjónustu.

Ólympíuhópur ÍSÍ er skipaður eftirfarandi keppendum:

Anna Kamilla Hlynsdóttir - snjóbretti
Bjarni Þór Hauksson - alpagreinar
Dagur Benediktsson - skíðaganga
Gauti Guðmundsson - alpagreinar
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir - alpagreinar
Jón Erik Sigurðsson - alpagreinar
Kristrún Guðnadóttir - skíðaganga
Matthías Kristinsson - alpagreinar

Ólympíuhópur ÍSÍ

Bjarni Þór Hauksson
Bjarni Þór varð í 9. sæti í svigi og 10. sæti í stórsvigi á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í febrúar 2023 og hafnaði í 30. sæti í stórsvigi á HM unglinga í alpagreinum í febrúar 2024. Bjarni varð þrefaldur Íslandsmeistari vorið 2024 þegar hann sigraði í stórsvigi, svigi og í alpatvíkeppni á Skíðamóti Íslands í alpagreinum og hann náði einnig frábærum árangri í öllum greinum Íslandsmótsins 2025. Besti árangur hans á síðasta tímabili var 2. og 3. sætið á tveimur alþjóðlegum mótum í Noregi.

Kristrún Guðnadóttir
Kristrún hefur unnið alla flokka á Íslandsmeistaramótum í gönguskíðum frá árinu 2019 og þá hefur hún undanfarin ár náð góðum árangri á alþjóðavettvangi. Þar má meðal annars nefna 15. sæti í sprettgöngu á Scandinavian Cup og 23. sæti á Alpen Cup árið 2024. Kristrún átti 12. besta tímann í liðaspretti á HM 2023 og sama ár hafnaði hún í 31. sæti í Marcialonga, sem er 70 km ganga, og í 39. sæti í Vasaloppet, sem er 90 km ganga, og eru þetta bestu úrslit sem íslensk kona hefur náð í lengri göngum.

Matthías Kristinsson
Matthías hefur náð góðum árangri á alþjóðlegum mótum í Noregi síðustu misserin og árið 2024 fagnaði hann tvisvar sigri í svigkeppni, fyrst í Kirkerud í janúar og í Oppdal í apríl. Matthías hafnaði í 8.sæti í svigi á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar árið 2023 og fyrr á þessu ári varð hann í 3. sæti í svigkeppni í Raudalen.

Dagur Benediktsson
Dagur er einn fremsti skíðagöngumaður Íslands og hefur náð góðum árangri innanlands og á alþjóðavettvangi. Hann varð Íslandsmeistari í öllum greinum skíðagöngu á Skíðamóti Íslands árin 2024 og 2025. Á alþjóðlegum mótum erlendis hefur Dagur einnig náð eftirtektarverðum árangri. Í fyrra hafnaði hann í 26. sæti á móti í Idre í Svíþjóð og á þessu ári varð hann í 53. sæti í 10 km og 50 km greinum á HM í skíðagöngu.

Gauti Guðmundsson
Gauti er einn fremsti alpaskíðamaður Íslands og varð Íslandsmeistari í svigi og alpatvíkeppni árið 2025. Á erlendum vettvangi hefur Gauti náð góðum árangri en þar má meðal annars nefna 45. sæti í stórsvigi á HM 2023 og 2. sæti á alþjóðlegu móti á Ítalíu 2024. Góð frammistaða hans á síðasta tímabili tryggði honum sæti á meðal 250 efstu á heimslista.

Jón Erik Sigurðsson
Jón Erik hefur átt frábært tímabil til þessa og er í 19. sæti á heimslista í svigi í sínum árgangi. Jón Erik komst upp úr undankeppninni í báðum greinum á HM unglinga á Ítalíu fyrr á þessu ári og hafnaði í 22. sæti í svigi, sem er besti árangur Íslendings á mótinu. Jón Erik náði að auki þeim magnaða árangri að vera ellefu sinnum í röð í verðlaunasæti á mótum erlendis á síðasta tímabili.

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir
Hólmfríður Dóra er ein reynslumesta skíðakona landsins en hún keppir í alpagreinum. Hólmfríður  hefur um árabil verið í fremstu röð hérlendis en hún er margfaldur Íslands- og bikarmeistari. Hún keppti á Ólympíuleikunum í Peking 2022 þar sem hún hafnaði í 32. sæti í risasvigi og 38. sæti í svigi. Á HM í Saalbach á þessu ári hafnaði hún í 29. sæti í bruni og í janúar keppti hún í heimsbikarnum, sterkustu mótaröð skíðaíþróttanna, í Cortina d’Ampezzo og hafnaði í 46. sæti í risasvigi og 50. sæti í bruni.


Anna Kamilla Hlynsdóttir

Anna Kamilla hefur skrifað nýjan kafla í sögu snjóbrettaíþróttarinnar hjá Íslendingum með glæsilegum árangri á tímabilinu. Á þessu ári varð Anna Kamilla bæði Noregs- og Íslandsmeistari, og er hún að auki fyrsta snjóbrettakonan til að vinna sér inn þátttökurétt á heimsbikarmótum. Anna Kamilla var valin skíðakona ársins árið 2024.