Göngum í skólann hefst 3. september

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í 19. sinn miðvikudaginn 3. september næstkomandi.
Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 83 skólar skráðu sig til leiks árið 2024.
Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.
Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál.
Við vekjum athygli á skráningarsíðu Göngum í skólann en þar er hægt að tilgreina nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á því hvað skólinn ætlar að gera í tilefni Göngum í skólann. Átaksverkefninu lýkur 1. október, sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn.
Samstarfs og styrktaraðilar Göngum í skólann eru European Commission, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.
Nánari upplýsingar veitir Linda Laufdal, verkefnastjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4016 eða á netfanginu linda@isi.is.