Opið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga
.jpg?proc=400x400)
Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrki vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2025.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 12. janúar 2026 og er stefnt að úthlutun í febrúar/mars 2026.
Íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta stofnað umsókn nú þegar og skráð inn í hana ferðir sem hafa þegar verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu við umsóknarskilin.
Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og fær þá viðkomandi senda vefslóð í tölvupóst sem gefinn er upp. Sú slóð gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til hún hefur verið send í gegnum kerfið, í lok umsóknartímabilsins eða um leið og viðkomandi félag hefur skráð allar þær ferðir á styrkhæf mót sem sækja á um fyrir.
Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga
Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á „Sækja um ferðastyrk”.
Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á „Stofna”, þá er hægt að skrá inn ferðir. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið.
Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin.
Mót sem ekki birtast í fellilista eru ekki styrkhæf.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast sendið póst á Jón Reyni Reynisson hjá ÍSÍ, á netfangið jon@isi.is.