Netnámskeið í lyfjamálum á íslensku

Lyfjaeftirlit Íslands vekur athygli á nýjung í fræðslumálum varðandi lyfjamál í íþróttum. Nú stendur til boða að skrá sig á netnámskeið á íslensku, þátttakendum að kostnaðarlausu, sem sérsniðið er fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk, 16 ára og eldri.
Nauðsynlegt er að búa til aðgang á ADEL til að nálgast fræðsluefnið.
Námskeiðinu er skipt upp í átta hluta:
- Hreinar íþróttir
- Heimur lyfjaeftirlitsins
- Krefjandi augnablik á ferli íþróttamanns
- Lyf í íþróttum – Bannlistinn
- Matur vs. fæðubótarefni
- Lyfjapróf
- Hugrekki til að segja frá
- Lokakönnun
Nálgast má námskeiðið hér: https://adel.wada-ama.org/learn/learning-plans/177/adel-fyrir-haefileikarikt-ithrottafolk-talicelandic
Á heimasíðu ADEL, sem er á vegum WADA (World Anti-Doping Agency) má finna ýmis önnur námskeið á ensku fyrir mismunandi markhópa, s.s. þjálfara, heilbrigðisstarfsmenn, kennara, foreldra, og allt frá yngstu iðkendum íþrótta upp í Ólympíufara. ADEL er mikilvægur vettvangur fyrir vottaða fræðslu fyrir keppnir á vegum margra alþjóðasérsambanda. ADEL er opið öllum þannig að hverjum þeim sem hefur áhuga er frjálst að skrá sig á mismunandi námskeið, og hægt er að vista framvindu námskeiðs og þannig ljúka þeim þegar hverjum og einum hentar.
Heimasíða ADEL: https://adel.wada-ama.org
Nánari upplýsingar veitir Lyfjaeftirlit Íslands: lyfjaeftirlit@lyfjaeftirlit.is