Mikilvægt að „Allir með“ haldi áfram
.jpg?proc=400x400)
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) boðaði til fundar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þriðjudaginn 24. júní með mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni, forseta ÍSÍ, Willum Þór Þórssyni og Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ. Tilefni fundarins var verkefnið „Allir með“, sem ráðgert er að ljúki 2025.
Árin 2023, 2024 og 2025 voru lagðar fram 20 milljónir á ári, fyrst frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, síðan mennta- og barnamálaráðuneyti og í ár frá heilbrigðisráðuneyti eða samtals 60 milljónir frá þessum þremur ráðuneytum. Megintilgangur fundarins var að leita eftir stuðningi við ráðherra til að geta haldið verkefninu „Allir með“ áfram. Til stendur að boða ráðherra hinna tveggja ráðuneytana á fund í sama tilgangi.
Verkefnið „Allir með“ hófst í upphafi árs 2023 en samstarfsaðilar þess eru ÍF, sem heldur utan um verkefnið, ÍSÍ og UMFÍ. Markmið verkefnisins er að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna. Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir, með viðeigandi aðlögum. Einnig að öll börn og ungmenni eigi þess kost að öðlast reynslu af þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi og verða sér úti um leikni til að eflast í öryggi og góðum félagsskap. Lýðheilsa og forvarnir hafa beintengingu við verkefni eins og „Allir með“ sem getur haft áhrif á félagslega einangrun og samfélagslega virkni. Sá stóri hópur fatlaðra barna sem er útundan í íþróttahreyfingunni er markhópur verkefnisins „Allir með“ og það er því ljóst að verkefnið þarf að fá áframhaldandi brautargengi.
Á fundinum í Laugardal fór Valdimar S. Gunnarsson, verkefnastjóri „Allir með“, yfir stöðu verkefnisins, áskoranir og tækifæri, kynnti sérstök verkefni sem sett hafa verið á fót og verkefnin framundan. Valdimar fór yfir tölfræði verkefnisins sem þegar er farin að sýna aukna þátttöku í íþróttum fatlaðra barna. Hann benti líka á ákveðna þætti sem geta verið mikilvægir í áframhaldandi og jákvæðri þróun verkefnisins. Þar er horft til viðhorfsbreytinga, nýrra tækifæra, samtals við foreldra, útbreiðslu á landsvísu og aðra þætti sem geta stuðlað að jákvæðri upplifun. Valdimar lagði áherslu á mikilvægi Hvatasjóðs og svæðisfulltrúa íþróttahreyfingarinnar sem starfa á átta svæðisstöðvum um land allt. Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
„Ég þekki verkefnið vel og tel afar mikilvægt að það haldi áfram, enda er það þegar farið að skila árangri. Íþróttahreyfingin er sá vettvangur sem er hvað öflugastur er kemur að forvörnum og lýðheilsu og eins og nafnið á verkefninu gefur til kynna, „Allir með“, viljum við vera fyrir öll börn. Svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar eru mjög mikilvægir í þessari vinnu því þeir eru tengiliðir við sveitarfélögin út um allt land,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.