Hvatasjóður úthlutar 38,5 milljónum

Annarri úthlutun úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar er lokið. Hvatasjóði barst 91 umsókn upp á rúmar 128 milljónir króna og voru umsækjendur úr öllum landshlutum. Samþykktar voru 72 umsóknir og um 38,5 milljónum var úthlutað í verkefni sem samræmast áhersluatriðum sjóðsins.
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Sjóðurinn stykir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna, með áherslu á þátttöku barna með fötlun, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Úthlutun skiptist svona:
Börn með fötlun: 26 umsóknir samþykktar - 15.000.000 kr.
Börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn: 10 umsóknir samþykktar - 5.590.000 kr.
Börn frá tekjulægri heimilum: 5 umsóknir samþykktar - 1.800.000 kr.
Annað og blandaðir áhersluflokkar: 31 umsókn samþykkt - 16.100.000 kr.
Úthlutun eftir landshlutum:
Austurland: 8 umsóknir samþykktar - 5.590.000 kr.
Höfuðborgarsvæðið: 32 umsóknir samþykktar - 17.990.000 kr.
Norðurland eystra: 4 umsóknir samþykktar - 2.000.000 kr.
Norðurland vestra: 4 umsóknir samþykktar - 850.000 kr.
Suðurland: 11 umsóknir samþykktar - 5.550.000 kr.
Suðurnes: 3 umsóknir samþykktar - 1.750.000 kr.
Vesturland: 9 umsóknir samþykktar - 4.550.000 kr.
Vestfirðir: 1 umsókn samþykkt - 300.000 kr.
Hér má sjá úthlutunina eftir umsækjendum og heiti verkefnis.