Flöggum fána lýðheilsu

Lýðheilsa og forvarnir er leiðarstef íþróttahreyfingarinnar og það var jafnframt inntakið í málþingi á vegum Fræðslu og forvarna - félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF - Samstarf félagasamtaka í forvörnum, sem haldið var í Þjóðminjasafninu þann 16. júní.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var á meðal þeirra sem ávörpuðu málþingið. Hann fór yfir hlutverk ÍSÍ er kemur að lýðheilsu og forvarnargildi íþrótta og lagði áherslu á að það þurfi stöðugt að halda mikilvægi þessara þátta á lofti. Íþróttastarf á Íslandi, rétt eins og erlendis, hefur tekið umtalsverðum breytingum á síðustu áratugum og önnur samfélagsáhrif hafa bein og óbein áhrif á íþróttastarfið. Þannig hefur það til dæmis færst í aukana að íþróttafélög sæki um leyfi til að selja áfengi á skilgreindum íþróttaviðburðum í fjáröflunarskyni. Það má því í dag finna íþróttaviðburði þar sem áfengi er til sölu, með þeim leyfum sem yfirvöld á Íslandi hafa veitt og hafa eftirlit með. Niðurstöður rannsókna, bæði hérlendis og erlendis, hafa hins vegar ekkert breyst í áranna rás og sýna að þátttaka unglinga í skipulögðu íþróttastarfi dregur úr líkum á hvers kyns óæskileglegri frávikshegðun barna og unglinga.
Á 77. Íþróttaþingi ÍSÍ, sem haldið var um miðjan maí, var skýrt ákall innan íþróttahreyfingarinnar að sett yrði þéttara regluverk hvað varðar áfengissölu á íþróttaviðburðum og var tillaga þess efnis samþykkt á þinginu. Lagt var til að ÍSÍ tæki forystu í að móta samræmdar reglur og stefnu um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum í samvinnu við aðildarfélög, stjórnvöld, lýðheilsuyfirvöld og forvarnar- og fagaðila og leiði samtalið með því markmiði að finna jafnvægi á milli forvarnar- og lýðheilsusjónarmiða og fjáröflunar íþróttafélaganna.
Alma Möller, heilbrigðisráðherra, og María Heimisdóttir, landlæknir, ræddu einnig áfengisforvarnir og mikilvægi þess að standa vörð um lýðheilsuna. Fulltrúar frá forvarnarsamtökunum sem komu að málþinginu tóku einnig til máls og í lokin voru panelumræður þar sem þingmenn allra flokka á Alþingi ræddu afstöðu sinna flokka um málefnið.