Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
23

Alþjóðlegi Ólympíudagurinn í dag - Íþróttagleði í Vogunum

23.06.2025

 

Í dag, 23. júní, er alþjóðlegi Ólympíudagurinn og er hann haldinn hátíðlegur um heim allan, en þennan dag árið 1894 var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð. Þetta er því sérstakur dagur í sögu íþrótta og í tilefni dagsins eru allir, óháð íþróttalegri getu, hvattir til að hreyfa sig, læra nýjar íþróttagreinar og kynnast ólympískum hugsjónum og gildum, sem eru að ávallt gera sitt besta, sýna vináttu og virðingu.

ÍSÍ hefur fagnað deginum með margvíslegum hætti undanfarin ár og að þessu sinni tók ÍSÍ forskot á sæluna með íþróttagleði í Vogunum síðastliðinn fimmtudag þar sem stór hópur grunn- og leikskólabarna í Vogunum spreyttu sig í hinum ýmsu greinum og þrautum. Lalli töframaður tók einnig þátt í gleðinni og töfrabrögð Lalla vöktu mikla kátínu, sérstaklega hjá leikskólabörnunum sem fylgdust dolfallin með tilþrifunum.

Perla Ruth Rúnarsdóttir og Sigurður Friðrik Gunnarsson, svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar á Suðurnesjum, sáu svo um að grilla pylsur ofan í hópinn og fóru allir saddir og sælir heim.

Myndir með frétt