Tíu ná alþjóðlegu þjálfarastigi 1 hjá BFSÍ

Bogfimisamband Íslands (BFSÍ) hélt alþjóðlegt þjálfaranámskeið (1. stig) hér á Íslandi dagana 9.-14. júní. Námskeiðið er styrkt af Ólympíusamhjálpinni (Olympic Solidarity) með stuðningi frá ÍSÍ og Alþjóðlega bogfimisambandinu (World Archery). Þau tíu sem luku 1. stiginu hljóta alþjóðleg þjálfararéttindi til næstu fjögurra ára.
Aðildarfélög BFSÍ eru þrettán talsins og ákveða félögin sjálf hverjir sækja þjálfaranámskeið. Tilgangur námskeiðanna er að búa til virka þjálfara sem styðja uppbyggingu aðildarfélaganna. Tvö félög innan BFSÍ, UMF Afturelding á Reykhólum og Skotfélagið Skyttur á Hellu, áttu fulltrúa á þjálfaranámskeiðinu en enginn bogfimiþjálfari var áður starfandi innan þessara félaga.
Tim Swane frá Bretlandi, aðalþjálfari á vegum Alþjóða bogfimisambandsins, sá um þjálfun á námskeiðinu. Að hans sögn stendur BFSÍ framarlega í mörgum þáttum innan aðildarsambanda Alþjóða bogfimisambandsins. Í því samhengi má til dæmis nefna að Sóley Rán Hammann er fyrsti kynsegin (gender fluid) þátttakandi á þjálfaranámskeiði á vegum Alþjóða bogfimisambandsins og er Sóley nú eitt af 29 á Íslandi með þjálfararéttindi. Sóley er því fyrsti kynsegin þjálfari í bogfimi á Íslandi og alþjóðlega.
Tim heimsótti ÍSÍ á meðan á þjálfaranámskeiðinu stóð og ræddi þar við Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ, og Ragnhildi Skúladóttur, sviðsstjóra á fræðslu- og almenningssviði ÍSÍ.
Ítarlegri frétt um þjálfaranámskeiðið á BFSÍ má finna hér.