Gunnhildur nýr svæðisfulltrúi á Vesturlandi

Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur verið ráðin svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Vesturlandi. Gunnhildur tekur við starfinu af Heiðari Mar Björnssyni sem fyrr í júní var ráðinn framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness.
Flest íþróttaáhugafólk þekkir Gunnhildi úr körfuboltanum en hún á að baki 36 landsleiki fyrir kvennalandslið Íslands auk þess að hafa spilað yfir 400 meistaraflokksleiki með Snæfelli og Haukum. Hún varð bikarmeistari með Haukum árið 2014, Íslandsmeistari með Snæfelli árið 2015 og Íslands- og bikarmeistari með Snæfelli 2016. Gunnhildur ólst upp í Stykkishólmi og býr fjölskyldan nú í Helgafellsveit.
„Ég er mjög spennt og full tilhlökkunar þar sem fullt er af tækifærum fyrir héruðin og ekki síst íþróttafélögin,“ segir Gunnhildur, sem tekur til starfa sem svæðisfulltrúi í ágúst. Það er óhætt að segja að Gunnhildur þekki íþróttastarfsemina á Vesturlandi vel en auk þess að hafa spilað körfubolta frá barnæsku með Snæfelli er hún í dag íþróttakennari við grunnskólann í Stykkishólmi og framkvæmdastjóri Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH).
Svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna
Starfsfólk svæðisstöðva íþróttahéraðanna eru sextán talsins um allt land og í öllum landshlutum. Hver svæðistöð styður við íþróttahéruð á sínu svæði og hjálpar þeim að innleiða stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum. Starfsemi svæðisstöðvanna hófst fyrir um ári. Ein af áherslum svæðisstöðvanna er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi, sérstaklega börn með fatlanir, frá tekjulægri heimilum og þau sem hafa fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Á svæðisstöðinni á Vesturlandi eins og um allt land eru tveir starfsmenn. Á svæðisstöðinni á Vesturlandi mun Gunnhildur starfa með Álfheiði Sverrisdóttur.
Hér má lesa nánar um svæðisstöðvar íþróttahéraðanna.