Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
13

Sigurjón kjörinn forseti Alþjóða kraftlyftingasambandsins

12.06.2025

 

Sig­ur­jón Pét­urs­son var í gær kjör­inn for­seti Alþjóða kraft­lyft­inga­sam­bands­ins þegar hann tók form­lega við af Gast­on Para­ge frá Lúx­em­borg. Sigurjón var áður varaformaður sambandsins en hann hefur sinnt margvíslegum störfum fyrir Alþjóða kraftlyftingasambandið í gegnum árin, verið formaður aganefndar og lyfjanefndar.

Sigurjón var útnefndur Heiðursfélagi ÍSÍ á 77. íþróttaþingi ÍSÍ sem fram fór í maí. Árið 2020 var hann sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ og sama ár var hann kjörinn fyrsti heiðursformaður Kraftlyftingasambands Íslands. Ári síðar var Sigurjón tekinn inn í heiðurshöll Alþjóða kraftlyftingasambandsins.

Myndir með frétt