Sigursteinn sæmdur gullmerki ÍSÍ

Á ársþingi Taekwondosambands Íslands (TKÍ) þann 7. maí var Sigursteinn Snorrason sæmdur gullmerki ÍSÍ fyrir ómetanleg störf sín í þágu taekwondo á Íslandi.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, afhenti Sigursteini gullmerkið fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ.
Í umsögn á heimasíðu Taekwondosambandsins segir meðal annars:
Sigursteinn Snorrason hefur verið stórt nafn í íslensku Taekwondo starfi í yfir 30 ár.
Hann var meðlimur í undirbúningsnefnd um stofnun Taekwondosambands Íslands sem vann að myndun sérsambands á árunum 1994-2002.
Sigursteinn var stofnmeðlimur í stjórn Taekwondosambands Íslands (TKÍ) árið 2002 og hefur verið af og til í gegnum árin stjórnarmaður TKÍ.
Hann hefur stofnað og verið kennari fjölmargra félaga á landinu og verið þar með einn af máttarstólpum Taekwondosamfélagsins í áratugi. Hann hefur einnig gefið út kennsluefni fyrir Taekwondo, þ.m.t. dómara og þjálfunarefni. Hann er hæðst gráðaði Taekwondomaður landsins og einn þeirra sem hefur sótt sér hvað mesta menntun og þekkingu erlendis. Hann bjó meðal annars í Kóreu í ár til að öðlast svartbelti og sækir þangað reglulega í meiri þekkingu. Hann hefur verið landliðsþjálfari Íslands, dómari, komið að mótahaldi og öllu grunnstarfi sambandsins í áratugi. Einnig hefur hann haldið fjölmargar æfingarbúðir með heimsklassa þjálfurum og keppendum sem er meðal annars stór partur af velgengni okkar fólks seinustu árin.