Íslandsmet, mótsmet og 18 verðlaun á þriðja keppnisdegi
Í dag var komið að þriðja keppnisdegi Smáþjóðaleikanna í Andorra og hélt íslenska íþróttafólkið áfram að raða inn verðlaunum.
Skotíþróttir
Ísland krækti í bæði gull og silfur í skotfimi karla með loftskammbyssu karla í dag. Jón Þór Sigurðsson og Ívar Ragnarsson komust báðir í úrslit og svo fór að þeir voru tveir eftir í baráttunni um gull og silfur. Jón Þór hafði betur með 229,3 stig og fékk því gullverðlaunin og Ívar fékk silfur með 226,2 stig. Þar með lauk skotfimi á leikunum en í gær varð Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir fimmta í loftskammbyssu kvenna og Jórunn Harðardóttir varð áttunda.
Frjálsíþróttir
Keppni í frjálsíþróttum hélt áfram í kvöld eftir hvíldardag í gær. Erna Sóley Gunnarsdóttir keppti í kúluvarpi og tryggði sér gullverðlaunin af miklu öryggi en Erna kastaði 16,52 metra og setti hún um leið mótsmet í greininni. Í langstökki karla sigraði Þorleifur Einar Leifsson með stökk upp á 7,26 metra en Guðjón Dunbar Þorsteinsson varð fjórði, hann stökk lengst 6,60. Birta María Haraldsdóttir vann svo silfurverðlaun í hástökki (1,81 m), Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir fékk brons í 400 metra hlaupi þegar hún kom í mark á 54,99 sekúndum og Daði Arnarson fékk einnig brons í 1500 metra hlaupi (4:07,03). Íris Anna Skúladóttir varð svo fimmta í 1500 metra hlaupi kvenna.
Sund
Eitt Íslandsmet, þrjú gull, fjögur silfur og þrjú brons var uppskeran hjá sundfólkinu á þriðja keppnisdeginum og trónir íslenska sundsveitin á toppnum yfir fjölda verðlauna á leikunum til þessa. Snæfríður Sól Jórunnardóttir átti afar gott sund í 400 metra skriðsundi og bætti þar Íslandsmet sitt sem hún setti á Smáþjóðaleikunum á Möltu fyrir tveimur árum um þrjár sekúndur. Snæfríður synti á 4:17,79 og varð önnur í bakkann, aðeins tveimur hundraðshlutum á eftir Sashö frá Möltu. Ylfa Lind Kristmannsdóttir vann gullverðlaun í 100 metra baksundi, hennar önnur gullverðlaun á mótinu, og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir vann gull í 100 metra flugsundi. Nadja Djurovic varð önnur í 100 metra flugsundinu og fékk silfur. Kvennasveitin í 4x200 metra skriðsundi sigraði svo með yfirburðum, en sveitin var skipuð þeim Evu Margréti Falsdóttur, Völu Dís Cicero, Snæfríði Sól Jórunnardóttur og Nadju Djurovic. Jóhanna Elín fékk svo silfur í 50 metra skriðsundi, Einar Margeir fékk silfur í 200 metra bringusundi, Eva Margrét Falsdóttir fékk brons í 200 metra bringusundi, Guðmundur Leo Rafnsson fékk brons í 100 metra baksundi og Birnir Freyr Hálfdánarson fékk brons í 100 metra flugsundi. Karlasveitin í 4x200 metra skriðsundi tryggði sér svo brons í spennandi sundi en sveitina skipuðu þeir Guðmundur Leo, Magnús Víðir, Veigar Hrafn og Ýmir Chatenay.
Blak
Karlalið Íslands í blaki mætti taplausu liði Kýpur í kvöld og það var á brattann að sækja fyrir Íslendingana. Kýpur vann fyrstu hrinu sannfærandi, 25-12, en Ísland rétti úr kútnum í annarri hrinu og vann hana 25-21, leikurinn þar með orðinn jafn 1-1. Leikurinn endaði þó með 3-1 sigri Kýpur sem halda sigurgöngu sinni áfram. Ísland mætir liði Mónakó á morgun.
Strandblak
Íslensku strandblaksliðin spiluðu sinn leikinn hvort í dag. Kvennaliðið mætti Lúxemborg í hörkuleik þar sem lið Lúxemborgar hafði betur, 2-1. Karlaliðið mætti Mónakó og mátti þola 2-0 tap. Karlaliðið mætir Kýpur á morgun og kvennaliðið spilar við lið Liechtenstein.
Júdó
Liðakeppni í júdó var á dagskránni í dag og þar gerði kvennaliðið sér lítið fyrir og tryggði bronsverðlaunin. Sveitina skipuðu þær Eyja Viborg, Helena Bjarnadóttir og Weronika Komendera. Karlaliðið féll úr leik í 8-liða úrslitum og náði því ekki í verðlaun að þessu sinni.
Borðtennis
Í dag var keppt í liðakeppni í borðtennis, í karla- og kvennaflokki. Íslensku liðin mættu erfiðum andstæðingum í dag og máttu bæði lið þola tap í öllum leikjum dagsins, þrátt fyrir að einstaka leikir og lotur hafi unnist og margir lotur staðið afar tæpt. Þetta var síðasti keppnisdagurinn í borðtennis og koma íslensku keppendurnir reynslunni ríkari heim til Íslands eftir Smáþjóðaleikana.
Tennis
Einn leikur var á dagskrá í tennis hjá Íslandi í dag en Emilia Eyva Thygesen, sem er aðeins 14 ára, mætti hinni 22 ára Marie Weckerle frá Lúxemborg. Emilía vann fyrstu lotu leiksins og fyrsta settið var nokkuð öruggt en Weckerle, sem er í 620. sæti heimslistans, vann leikinn í tviemur settum, 6-1 og 6-3. Þess má geta að Emilia vann 44% stiga í leiknum, sem er afar vel gert. Á morgun keppa hún og Rafn Kumar Bonifacius um sæti í úrslitum í tvenndarleik en andstæðingarnir eru einmitt lið Lúxemborgar, Marie Weckerle og Alex Knaff.
Fjallahjólreiðar
Keppt var í ólympískum fjallahjólreiðum í dag og keppti Björg Hákonardóttir í kvennaflokki og þeir Breki Gunnarsson, Kristinn Jónsson og Davíð Jónsson í karlaflokki. Keppnisstaðurinn var Pal Arinsal Bike Park en hann er í yfir 2000 metra hæð yfir sjávarmáli og var um að ræða sömu braut og notuð hefur verið í heimsbikarmótaröð Alþjóðahjólreiðasambandsins. Aðstæður voru afar krefjandi en hitinn var um 30°C. Björg hafnaði í 8. sæti í kvennaflokki og af 19 keppendum í karlaflokki varð Davíð í 12. sæti, Breki í 13. sæti og Kristinn í 17. sæti.
Dagskrá morgundagsins má finna hér: Schedule and results - Jocs dels Petits Estats d'Europa