Laust starf svæðisfulltrúa á höfuðborgarsvæðinu
23.04.2025
Vilt þú taka þátt í að efla íþróttastarf? - Við leitum að svæðisfulltrúa fyrir höfuðborgarsvæðið
ÍSÍ og UMFÍ leita að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi á Íslandi til að ganga til liðs við teymi svæðisfulltrúa sem starfa víða um landið. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir áhugasaman einstakling til að taka virkan þátt í að byggja upp öflugt íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu og verða hluti af frábæru teymi á landsvísu.
Alls eru sextán starfsmenn staðsettir á átta svæðastöðvum víðs vegar um landið, tveir á hverri stöð. Þeir starfa sem ein liðsheild þar sem styrkleikar og hæfileikar hvers og eins fá að njóta sín í nánu samstarfi við hvert annað og við íþróttahreyfinguna í heild. Umsóknarfrestur er til 2. maí og er hægt að sækja um hér.
Helstu verkefni svæðisstöðva:
- Samstarf, samskipti og stuðningur við íþróttahéruð og aðildarfélög.
 - Samstarf og samskipti við opinbera aðila varðandi stuðning og þjónustu íþróttafélaga um allt land.
 - Vinnsla verkefna sem tengjast aukinni þátttöku barna í íþróttum og farsæld.
 - Verkefnisstjórnun og vinna að nýsköpunarverkefnum.
 - Mótaskipulag og eftirfylgni tengt fræðslumálum íþróttahéraða.
 - Fræðsla og kynning til íþróttahéraða og aðildarfélaga í ýmsum málum.
 - Samræming málaflokka, stjórnarhátta, verkferla, öryggis- og viðbragðsáætlana.
 - Koma upp og viðhalda leiðbeiningum og viðmiðum fyrir stjórnun íþróttahéraða og stjórnendur íþróttafélaga.
 - Yfirlit og eftirfylgni með lögbundnum skyldum íþróttahéraða og aðildarfélaga.
 - Umsjón og þátttaka í samráði og á samræmingarfundum.
 
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingum með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
 - Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
 - Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
 - Styrkleiki og reynsla á eftirfarandi sviðum er kostur:
 - Verkefnastjórnun, mótun ferla, fræðsla og miðlun upplýsinga.
 
Til viðbótar er mikilvægt að umsækjendur búi yfir frumkvæði, séu sjálfstæðir, geti unnið í teymi, miðlað upplýsingum munnlega og skriflega, unnið skipulega, haft góða samskiptahæfileika og getu til að ná árangri í mjög fjölbreyttu umhverfi. Umsækjendur þurfa að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.