Íþróttafólk Reykjavíkur 2024
Íþróttabandalag Reykjavíkur tilkynnti val á Íþróttakonu og Íþróttamanni Reykjavíkur 2024 ásamt Liði ársins 2024 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur 11. desember sl.
Eygló Fanndal Sturludóttir lyftingakona úr Lyftingafélagi Reykjavíkur er Íþróttakona Reykjavíkur 2024 og Benedikt Gunnar Óskarsson handknattleiksmaður úr Knattspyrnufélaginu Val er Íþróttamaður ársins 2024.
Í umsögnum sem fram koma á heimasíðu ÍBR kemur eftirfarandi fram:
Eygló Fanndal varð þrefaldur Evrópumeistari ungmenna 23 ára og yngri með nýju persónulegu meti og fékk jafnframt verðlaun sem stigahæsti kvenkyns keppandi mótsins. Hún varð Norðurlandamestari í -71 kg fullorðinsflokki í samanlögðum árangri, setti fjögur norðurlandamet og var jafnframt stigahæsti kvenkyns keppandi mótsins. Eygló setti sex Íslandsmet á árinu í fullorðins flokki og sex Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri. Hún varð Íslandsmeistari í -71 kg flokki kvenna og var afar nálægt því að tryggja sig inn á Ólympíuleikana. Eygló hefur bætt sig gríðarlega á árinu og tók þátt í hinum ýmsu mótum erlendis með góðum árangri.
Benedikt Gunnar spilaði stórt hlutverk í Bikar- og Evrópubikarmeistaraliði Vals á árinu. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 17 mörk í bikarúrslitaleiknum gegn ÍBV í mars og sló þá 22 ára gamalt markamet. Benedikt Gunnar var valinn besti leikmaður efstu deildar karla og snemma á árinu samdi hann við Noregsmeistara Kolstad frá Þrándheimi þar sem hann spilar m.a. í Meistaradeild Evrópu. Undanfarin misseri hefur Benedikt Gunnar verið hluti af A landsliðs hóp karla.
Meistaraflokkur karla í handknattleik, í Knattspyrnufélaginu Val, er Íþróttalið Reykjavíkur 2024.
Valur átti frábært tímabil og eru Bikarmeistarar 2024. Hápunktur tímabilsins verður að teljast frábær sigur félagsins í Evrópubikarkeppni karla en þar náðist sigur á sterku liði gríska félaginu Olympiakos í úrslitum keppninnar en úrslit réðust ekki fyrr en eftir vítakastkeppni á erfiðum útivelli í Grikklandi.
ÍSÍ óskar ofangreindu íþróttafólki innilega til hamingju með titlana og árangurinn á árinu 2024.
Myndir/ÍBR