Íþróttafólk Kópavogs 2024
Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu og Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki voru kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum 8. janúar sl. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar og 300 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni. Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks tók við verðlaununum fyrir hönd Höskuldar sem ekki gat mætt til hátíðarinnar.
Höskuldur og Thelma voru valin úr hópi 47 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum. Í kjörinu eru það atkvæði íþróttaráðs sem gilda 60% en íbúakosning 40%.
Í umsögnum um íþróttafólkið á heimasíðunni kopavogur.is kemur eftirfarandi fram:
Thelma Aðalsteinsdóttir átti frábært fimleikaár 2024. Hún varð Íslandsmeistari í fjölþraut í þriðja sinn, Íslandsmeistari á stökki, slá og gólfi. Hún varð einnig bikarmeistari með liði sínu í Gerplu. Hún varð Norðurlandameistari í liðakeppni og Norðurlandameistari á gólfi. Thelma varð Norður Evrópumeistari á öllum áhöldum og hlaut annað sæti í fjölþraut. Er þetta sögulegur árangur og besti árangur keppanda frá Íslandi. Thelma keppti á Evrópumótinu á Ítalíu þar sem hún endaði í 41. sæti og var hársbreidd frá því að tryggja sig inná ólympíuleikana í París. Á Evrópumótinu framkvæmdi hún æfingu á tvíslá sem þar var skírð eftir henni "Aðalsteinsdóttir". Í lok árs var Thelma svo valin fimleikakona ársins hjá Fimleikasambandi Íslands.
Höskuldur er fyrirliði meistaraflokks Breiðabliks í knattspyrnu karla og átti stóran þátt í að félagið varð Íslandsmeistari á árinu. Hann spilaði alla leikina í mótinu, alls 27 leiki og skoraði 9 mörk. Í lok tímabilsins var hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins af leikmönnum Bestu deildar karla ásamt því að vera valin í lið ársins í Bestu deildinni. Höskuldur hefur verið lykilmaður og frábær leiðtogi í Breiðabliksliðinu undanfarin ár bæði innan vallar sem utan. Hann er virkilega góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins, bæði hvað varðar ástundun en ekki síður hvernig hann kemur fram fyrir hönd félagsins.
ÍSÍ óskar ofangreindu íþróttafólki innilega til hamingju með titlana og árangurinn á árinu 2024.
Mynd/Kopavogur.is