Íþróttamaður ársins og íþróttafólk ársins 2024 heiðrað
Í dag, laugardaginn 4. janúar, fer fram sameiginlegt hóf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) í Silfurbergi í Hörpu, þar sem ÍSÍ afhendir viðurkenningar til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ og kjör SÍ á Íþróttamanni ársins, Liði ársins og Þjálfara ársins verður tilkynnt.
Fyrirtækin þrjú sem standa að Ólympíufjölskyldu ÍSÍ gefa verðlaunagripi til allra íþróttakvenna og íþróttamanna sérsambanda ÍSÍ en það eru Icelandair, Íslensk getspá og Toyota. Listi yfir útnefningar sérsambanda á íþróttafólki ársins verður birtur á heimasíðu ÍSÍ að hófi loknu.
Sýnt verður beint á RÚV þegar kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á ofangreindum heiðurstitlum verður lýst og hefst útsendingin kl.19.35. Samtök íþróttafréttamanna hafa birt lista yfir topp 10 í kjörinu um Íþróttamann ársins 2024. Í annað sinn eru konur í meirihluta tilnefndra en sex konur eru í efstu tíu sætunum í ár.
Á listanum er að finna eftirtalið íþróttafólk:
Albert Guðmundsson, knattspyrnumaður
Anton Sveinn McKee, sundmaður
Ásta Kristinsdóttir, fimleikakona
Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingakona
Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrnukona
Orri Steinn Óskarsson, knattspyrnumaður
Ómar Ingi Magnússon, handknattleiksmaður
Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sundkona
Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingakona
Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrnukona
Efstu þrír í kjöri SÍ um Þjálfara ársins 2024 eru:
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í knattspyrnu
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik
Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handknattleik
Efstu þrjú liðin í kjöri SÍ um Lið ársins 2024 eru:
Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu
Kvennalandslið Íslands í hópfimleikum
Karlalið Vals í handknattleik