Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

2

Íþróttafólk ársins 2024

30.12.2024

 

Laugardaginn 4. janúar nk. fer fram sameiginlegt hóf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) í Hörpunni, þar sem ÍSÍ afhendir viðurkenningar til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ og kjör SÍ á Íþróttamanni ársins, Liði ársins og Þjálfara ársins verður tilkynnt.

Fyrirtækin þrjú sem standa að Ólympíufjölskyldu ÍSÍ, þ.e. Icelandair, Íslensk getspá og Toyota, gefa verðlaunagripi til allra íþróttakvenna og íþróttamanna sérsambanda ÍSÍ. Listi yfir útnefningar sérsambanda á íþróttafólki ársins verður birtur á heimasíðu ÍSÍ að hófi loknu.

Sýnt verður beint á RÚV þegar kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á ofangreindum heiðurstitlum verður lýst. Samtök íþróttafréttamanna hafa birt lista yfir topp 10 í kjörinu um Íþróttamann ársins 2024. Annað árið í röð eru konur í meirihluta tilnefndra en sex konur eru í efstu tíu sætunum í ár.

Á listanum er að finna eftirtalið íþróttafólk:

Al­bert Guðmunds­son, knatt­spyrnumaður
Ant­on Sveinn McKee, sundmaður
Ásta Krist­ins­dótt­ir, fim­leika­kona
Eygló Fann­dal Sturlu­dótt­ir, lyft­inga­kona
Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrnukona
Orri Steinn Óskars­son, knatt­spyrnumaður
Ómar Ingi Magnús­son, hand­knatt­leiksmaður
Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sundkona
Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingakona
Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrnukona

Efstu þrír í kjöri SÍ um Þjálfara ársins 2024 eru:

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í knattspyrnu
Óskar Bjarni Óskars­son, þjálf­ari karlaliðs Vals í hand­knatt­leik
Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handknattleik

Efstu þrjú liðin í kjöri SÍ um Lið ársins 2024 eru:

Kvenna­landslið Íslands í knatt­spyrnu 
Kvennalandslið Íslands í hóp­fim­leik­um
Karlalið Vals í handknattleik