Dagur sjálfboðaliðans verður haldinn hátíðlegur 5. desember
Í tilefni af Degi sjálfboðaliðans þann 5. desember munu ÍSÍ og UMFÍ bjóða sjálfboðaliðum íþróttahreyfingarinnar að koma í Íþróttamiðstöðina í Laugardal og halda upp á daginn með okkur.
Klukkan 15:00 verður stutt málþing þar sem Íþróttaeldhugi ársins 2023, Guðrún Kristín Einarsdóttir mun segja sögu sína af sjálfboðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna, þá mun Jónas Hlíðar Vilhelmsson formaður Fálka sem er feðraklúbbur í Val segja frá þeirra starfi og að lokum mun Petra Ruth Rúnarsdóttir formaður Þróttar Vogum segja frá því hvað þátttaka í sjálfboðastarfi hefur gefið henni.
Að dagskrá lokinni eða um kl.16 er öllum viðstöddum boðið í vöfflukaffi í boði Vilko og Mjólkursamsölunnar.
Með þessu vilja ÍSÍ og UMFÍ vekja athygli á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða til íþróttastarfsins, en án þeirra gengi starfið einfaldlega ekki upp.
Nánari upplýsingar um viðburðinn hér.
Takk sjálfboðaliðar!