Sóley Margrét heimsmeistari í kraftlyftingum
19.11.2024
Sóley Margrét Jónsdóttir varð um síðustu helgi heimsmeistari í kraftlyftingum með búnaði í +84 kg flokki þegar hún sigraði mótið með miklum yfirburðum og vann til verðlauna í öllum greinum. Hlaut hún gullverðlaun í hnébeygju og silfurverðlaun í bekkpressu og réttstöðulyftu. Hún tryggði sér jafnframt réttinn til að keppa á Heimsleikunum (e. World Games) í Kína á næsta ári. Nánar um keppnina á heimasíðu Kraftlyftingasambandsins.
ÍSÍ óskar Sóleyju Margréti innilega til lukku með frábæran árangur og góðs gengis í þeim verkefnum sem framundan eru hjá henni!
Mynd/Kraft.is