Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
20

Allir með leikarnir 9. nóvember

04.11.2024

 

Allir með leikarnir verða haldnir laugardaginn 9. nóvember, og verða þeir bæði í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Öll börn með fatlanir eru velkomin á leikana. 

Allir með leikarnir er hluti af verkefninu Allir með sem gengur út á að fjölga tækifærum fyrir börn með fatlanir í íþróttum. Markmið með leikunum er að kynna íþróttir fyrir þessum hópi og um leið að gera verkefnið sýnilegra í samfélaginu.

Íþróttaálfurinn mætir á svæðið. Allir þátttakendur fá brúsa merktan leikunum og boðið verður upp á pitsuveislu í hádeginu þar sem einnig verða kynningar á öðrum íþróttagreinum. Deginum lýkur svo með dúndrandi diskói.

Öll fjölskyldan er velkomin með.
Þátttökugjald á leikana er 1.500 kr, og skráning fer fram á heimasíðu Allir með.

Leikarnir eru samstarfsverkefni og þeir aðilar sem koma að framkvæmd þeirra eru: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Knattspyrnusamband Íslands, Handknattleikssamband Íslands, Körfuknattleikssamband Íslands, Fimleikasamband Íslands, Frjálsíþróttasamband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra.


Myndir með frétt