Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25

Þrír skólar dregnir út í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

22.10.2024

 

Ólympíuhlaup ÍSÍ var formlega sett í Borgarhólsskóla á Húsavík þann 5. september síðastliðinn þar sem nemendur voru til fyrirmyndar og allt skipulag í kringum hlaupið mjög gott.  Veðrið var gott en talsverður vindur.  

Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur í grunnskólum landsins til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hver skóli sem tekur þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ fær viðurkenningu þar sem fram kemur hversu margir nemendur tóku þátt og heildarfjöldi kílómetra sem nemendur lögðu að baki. Þátttakan í ár er með allra besta móti, en 72 grunnskólar hafa skilað inn niðurstöðum og 18.690 nemandi hlaupið samtals 76.648 kílómetra. Það er tæplega 55 sinnum í kringum landið og næstum því tvisvar sinnum í kringum jörðina.

Í ár eins og undanfarin ár hafa þrír skólar sem lokið hafa hlaupinu og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ fyrir 10. október verið dregnir út. Þessir skólar eru

Tálknafjarðarskóli,

Laugalandsskóli í Holtum og

Stapaskóli í Reykjanesbæ.

Hver þessara þriggja skóla fær 150.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, en bendir jafnframt á að enn er hægt að hlaupa og fá viðurkenningarskjal þó að búið sé að draga út vinningana.

Samstarfsaðilar Ólympíuhlaups ÍSÍ eru Mjólkursamsalan sem hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala frá upphafi og gefið nemendum þess skóla sem opnar hlaupið kókómjólk, og Íþrótta-og heilsufræðingafélag Íslands.

Myndir frá Ólympíuhlaupinu er að finna hér

 

Myndir með frétt