Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
16

EOC Seminar 2024

15.10.2024

 

44. EOC Seminar fór fram í Budva í Svartfjallalandi dagana 27. og 28. september sl.  Andri Stefánsson framkvæmdastjóri, Líney Rut Halldórsdóttir ráðgjafi og meðstjórnandi í EOC og Kári Steinn Reynisson rekstrarstjóri sóttu viðburðinn af hálfu ÍSÍ.

Fundurinn, sem haldinn er árlega, er vettvangur umræðna um þau helstu hagsmunamál Ólympíunefnda í Evrópu. Meðal annars var farið yfir Ólympíuleikana í París, sem tókust afar vel að flestra mati. Kynntar voru Ólympíuhátíðir Evrópuæskunnar sem fram fara á næsta ári. Vetrarólympíuhátíðin verður í Bakuriani í Georgíu í febrúar og Sumarólympíuhátíðin verður í Skopje í Norður-Makedóníu næsta sumar. ÍSÍ mun senda þátttakendur á báðar hátíðirnar.

Að þessu sinni voru tvö meginþemu á fundinum, þ.e. sjálfbærnimál og gervigreind. Málþing um gervigreind var leitt af sérfræðingum frá Alþjóðaólympíunefndinni, Deloitte og Alibaba. Helsti fókusinn var settur á það hvernig gervigreindin getur helst orðið hreyfingunni að mestu gagni og fyrstu skrefin varðandi notkun. Á málþingi um sjálfbærni var rætt um nálgun Alþjóðaólympíunefndarinnar á málaflokkinn og einnig var kynnt hvernig Alþjóðaskíðaskotfimisambandið (IBU) hefur innleitt sjálfbærni í starfsemi sína.