Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
10

Opnað hefur verið fyrir umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga, fyrir keppnisferðir innanlands 2024

09.10.2024

 

Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrki vegna keppniferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2024. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 13. janúar 2025.


Íþrótta- og ungmennafélög geta stofnað umsókn nú þegar og skráð inn í hana ferðir sem hafa þegar verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu við umsóknarskilin. 
Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og fær þá viðkomandi senda vefslóð í tölvupóst sem gefinn er upp. Sú slóð gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til hún hefur verið send í gegnum kerfið í lok umsóknartímabilsins eða þegar viðkomandi félag hefur skráð allar þær ferðir sem farnar hafa verið á styrkhæf mót innanlands það árið.

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga

Upplýsingasíða um sjóðinn.

Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á „Sækja um ferðastyrk” sem er ofarlega á síðunni. Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á „Stofna”, þá er hægt að skrá inn ferðir. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið.

Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin. Mót sem ekki birtast í fellilista eru ekki styrkhæf.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast sendið póst á Jón Reyni Reynisson hjá ÍSÍ á netfangið jon@isi.is.