Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

12.09.2024 - 12.09.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
5

Göngum í skólann sett í Brekkuskóla á Akureyri

04.09.2024

 

Göngum í skólann var formlega sett í Brekkuskóla á Akureyri í dag. Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, hélt stutt ávarp og stjórnaði dagskrá en Jóhanna María Agnarsdóttir, skólastjóri Brekkuskóla, bauð nemendur og gesti velkomna. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar bað börnin um að fara eftir umferðareglunum og vera dugleg að ganga eða nota virkan ferðamáta bæði til og frá skóla. Páley Borþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, minnti krakkana á að lögreglan er til staðar fyrir alla og lagði áherslu á að nemendur pössuðu uppá hvort annað og væru vinir og Jóhann Gunnarsson, formaður Heimilis og skóla talaði um mikilvægi samstarfs heimila og skóla. Héðinn Svarfdal Björnsson hvatti nemendur til að vera sýnileg í umferðinni og minnti á nauðsyn endurskinsmerkja og svo afhenti Ragnhildur Skúladóttir, Jóhönnu Maríu, skólastjóra Göngum í skólann fánann að ávörpum loknum og einnig poka með boltum að gjöf fyrir skólann frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Skemmtiatriði voru svo í boði Húlladúllan, sem lék listir sínar fyrir viðstadda sem skemmtu sér konunglega áður en aðstandendur verkefnisins, nemendur og starfsfólk gengu verkefnið formlega af stað.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífsstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Í ár tekur Ísland þátt í 18. skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 4. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 4. október.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

 

Myndir með frétt