Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

12.09.2024 - 12.09.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
17

Ábyrg spilun og ólögmæt veðmálastarfsemi

09.08.2024

 

Undanfarnar vikur hefur verið fjallað töluvert um ólöglega veðmálastarfsemi í fjölmiðlum landsins. Meðal annars hefur verið rætt við Lárus L. Blöndal forseta ÍSÍ um málið og birtar hafa verið greinar um málefnið sem eru í mörgu ólíkar og sumar misvísandi.
Ýmsir aðilar, sem hafa fjárhagslega hagsmuni af starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja sem starfa á Íslandi með ólögmætum hætti, hafa tjáð sig um málið og varið þá starfsemi. 
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er stærsti eignaraðili Íslenskra getrauna. Í reglugerð um starfsemi fyrirtækisins segir: „Íslenskar getraunir eru félag sem stofnað er til að afla fjár til stuðnings íþróttaiðkunum á vegum áhugamanna um íþróttir á Íslandi í félögum innan Ungmennafélags Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.“
Það er vandmeðfarið að starfrækja slíka starfsemi á ábyrgan hátt sem hefur það meginmarkmið að afla fjár til íþróttaiðkunar. Hefur því frá upphafi verið lögð áhersla að vanda mjög til verka og á sama hátt byggir heimild Íslenskra getrauna til getraunastarfs á þeim lögum og reglum sem sett hafa verið á Íslandi. 
Með hliðsjón af þeirri misvísandi umfjöllun sem farið hefur fram undanfarnar vikur þá er talið rétt að ítreka nokkur atriði um málefnið og er hér vitnað í grein Péturs Hrafns Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna. Nauðsynlegt er að þeir aðilar sem starfa á vegum íþróttahreyfingarinnar á Íslandi séu upplýstir um þessi mál.
Íslenskar getraunir og Íslensk getspá hafa verið í fararbroddi þegar kemur að ábyrgri spilun og voru fyrst happdrættisfyrirtækja á Íslandi til að fá vottun frá European Lotteries, sem er samstarfsvettvangur 70 aðila eða fyrirtækja og World Lottery Association sem hefur 157 aðila innanborðs.
Í öllum rannsóknum sem gerðar hafa verið á Íslandi um spilavanda og spilafíkn hafa leikir Getspár og Getrauna aldrei tengst á marktækan hátt spilavanda og spilafíkn. Það gerist hinsvegar ekki af tilviljun, heldur vegna vel ígrundaðra ákvarðana sem teknar hafa verið í stjórnum fyrirtækjanna með ábyrga spilun í huga.
Nokkur atriði skipta miklu máli í þessu sambandi og sýnir muninn á Íslenskum getraunum sem reka m.a. Lengjuna og Lengjan beint og erlendum ólöglegum veðmálafyrirtækjum.
Erlendu veðmálafyrirtækin bjóða upp á inngöngubónusa fyrir þá sem koma nýir inn á síður þeirra. Geta þeir numið hundruðum evra sem nýir viðskiptavinir fá „gefins“. Rannsóknir sýna að inngöngubónusar eru öflugasta aðferðin til að sækja unga viðskiptavini. Íslenskar getraunir bjóða ekki upp á inngöngubónusa.
Erlend veðmálafyrirtæki bjóða upp á neikvæð veðmál, til dæmis að hægt sé að veðja á fjölda gulra eða rauðra spjalda, þar sem auðvelt er að hagræða úrslitum. Íslenskar getraunir bjóða ekki upp á neikvæð veðmál.
Erlend ólögleg veðmálafyrirtæki bjóða upp á hundruði leikja, bæði dag og nótt sem hægt er að veðja á meðan á leiknum stendur og hundruði veðmöguleika á hvern leik. Rannsóknir sýna að grundvöllurinn fyrir þróun spilafíknar er tíðni leikja sem boðið er uppá og endurgjöfin til þess sem veðjar. Þess vegna hafa Íslenskar getraunir tekið ákvörðun um að bjóða aðeins uppá 12 – 25 leiki á dag sem hægt er að veðja á meðan á leiknum stendur og almennt enga slíka leiki á næturnar.
Íslenskar getraunir eru með hámarksupphæð sem hver og einn getur spilað fyrir á dag, viku og mánuð. Enn fremur geta viðskiptavinir lækkað þá upphæð kjósi þeir svo, eða útilokað sig frá spilun hjá Getspá eða Getraunum. Erlend veðmálafyrirtæki eru flest hver ekki með hámarksupphæð sem hægt er að spila fyrir á dag eða viku.
Ný íslensk rannsókn dr. Daníels Ólasonar prófessors í sálfræði við Háskóla Íslands sýnir að allt að 20% ungra karlmanna á Íslandi á aldrinum 18 til 25 ára spili á erlendum veðmálasíðum. Ástæðan er sú að ólöglegar erlendar veðmálasíður herja á þennan markhóp með auglýsingum sínum í gegnum áhrifavalda sem höfða sérstaklega til ungra karlmanna, að ekki sé talað um jafn ósmekklega óbeina auglýsingu eins og að auglýsa hjá 16 til 18 ára verslunarskólanemendum. Íslenskar getraunir beina auglýsingum sínum ekki sérstaklega að ungu fólki í gegnum samfélagsmiðla eða áhrifavalda eins og erlendu ólöglegu veðmálasíðurnar gera.
Erlend veðmálafyrirtæki bjóða upp á veðmál um úrslit í yngri flokkum á Íslandi þar sem börn og unglingar eru að keppa. Það er ekki til fyrirmyndar og býður uppá hagræðingu úrslita og óeðlilegan þrýsting á ungt íþróttafólk þegar þeir sem eru að veðja á slíka leiki eru að reyna að komast yfir upplýsingar um liðin sem eru að keppa. Íslenskar getraunir bjóða ekki upp á unglingaleiki þar sem börn og unglingar keppa.
Niðurstöður rannsóknar dr. Daníels Ólasonar sýna að það eru ólöglegar erlendar veðmálasíður sem hafa marktæk tengsl við spilavanda og spilafíkn á Íslandi og þeim hörmungum sem slíku getur fylgt. Þeir sem spila á þessum veðmálasíðum eru fjórtán sinnum líklegri til að þróa með sér spilavanda og spilafíkn heldur en þeir sem gera það ekki.
Leikir Íslenskra getrauna hafa engin marktæk tengsl við spilavanda og spilafíkn samkvæmt sömu rannsókn. 
Þarna liggur munurinn annarsvegar á löglegri getraunastarfsemi og hinsvegar ólöglegri getraunastarfsemi á Íslandi.