Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
3

Erla Björk Jónsdóttir kosin nýr formaður HSS á ársþing

03.07.2024

 

77. ársþing Héraðssambands Strandamanna (HSS) var haldið fimmtudaginn 6. júní á Laugarhóli í Bjarnarfirði. Tuttugu og einn fulltrúi frá sex aðildarfélögum sótti þingið; þ.e. frá Umf. Geisla, Umf. Neista, Skíðafélagi Strandamanna, Golfklúbbi Hólmavíkur og Sundfélaginu Gretti. Óskar Torfason var fundarstjóri og Íris Björg Guðbjartsdóttir og Magnea Dröfn Hlynsdóttir fundarritarar.

Fundurinn var nokkuð hefðbundinn og ársreikningar og skýrsla stjórnar kynnt og bæði samþykkt. Einnig farið yfir nokkrar breytingatillögur og þær samþykktar.
Ný stjórn var kosin þar sem Jóhann Björn Arngrímsson gaf ekki kost á sér áfram sem formaður HSS en hann tók sæti sem varaformaður.  Erla Björk Jónsdóttir var kosin formaður í hans stað. Hildur Aradóttir var kosin gjaldkeri í stað Ragnars Bragasonar sem fór úr stjórn og kom Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir inn ný í stjórn sem ritari. Óskar Torfason, sem áður var varaformaður, tók sæti sem meðstjórnandi. 
Varamenn: Julíus Jónsson og Sveinn Ingimundur Pálsson héldu þar áfram en Ingólfur Árni Haraldsson og Ísabella B. Petersen kom ný inn.

Þá var íþróttafólk ársins 2023 valið. Íþróttamaður ársins hjá HSS árið 2023 var valin Árný Helga Birkisdóttir, fyrir góðan árangur á skíðum og efnilegasti íþróttamaður HSS var Jökull Ingimundur Hlynsson, fyrir góðan árangur í frjálsum íþróttum og gönguskíðum. Hvatningarbikar HSS fengu Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir og eldri borgarar fyrir dugnað og elju og mátti greina aukningu hjá þessum hópi og gott starf unnið hjá Ragnheiði Birnu.

Myndirnar eru af Ragnheiði Birnu Guðmundsdóttur fá afhentan hvatningarbikar HSS og Árnýju Helgu Birkisdóttur, íþróttamanns HSS, og Jökli Ingimundi Hlynssyni, efnilegasta íþróttamanni HSS. Myndir frá HSS.

 

Myndir með frétt