Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
18

Kristján endurkjörinn formaður BSÍ

18.06.2024

 

Ársþing Badmintonsambands Íslands fór fram í salarkynnum Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal fimmtudaginn 10. júní síðastliðinn.

Ríflega 40 manns sátu þingið, þar af 36 þingfulltrúar frá aðildarfélögunum. Þingið gekk vel fyrir sig og voru áritaðir reikningar sambandsins samþykktir samhljóða. Starf mótasviðs og afrekssviðs var kynnt og einnig tvær ályktanir sem hlutu góðar umræður.

Endurkjörin til næstu tveggja ára í stjórn sambandsins voru þau Kristján Daníelsson formaður, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðbjörg Jóna Guðlaugdóttir, Arnór Tumi Finnsson, Pétur Hemmingsen og Haukur Þórðarson. Kristinn Ingi Guðjónsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa og í hans stað var kjörinn Kjartan Drafnarson.

Hörður Þorsteinsson gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ var þingforseti á þinginu.

Mynd/BSÍ