Formannafundur ÍSÍ 2023 haldinn í dag
Árlegur Formannafundur ÍSÍ verður haldinn í dag, föstudaginn 24. nóvember, í nýju íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal. Fundurinn er upplýsingafundur framkvæmdastjórnar ÍSÍ og formanna og framkvæmdastjóra sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga.
Á fundinum mun ÍSÍ gefa þátttakendum skýrslu um helstu þætti í starfsemi ÍSÍ og fara yfir þau verkefni sem unnið hefur verið í á milli þinga. Fundurinn mun standa yfir á milli kl.15.30 og 19.00.
Áður en fundurinn hefst verður boðið upp á þrjú erindi á milli kl.13.30 og 15.00. Umfjöllunarefnin verða eftirfarandi:
• Sjálfbær íþróttamannvirki – Hvað þýðir það? - Þórey Edda Elísdóttir, umhverfisverkfræðingur og 1. varaforseti ÍSÍ
• Sálfærniþjálfun í íþróttum með aðferðarfræði 5C - Þórarinn Alvar Þórarinsson, sérfræðingur á Fræðslu- og Almenningsíþróttasviði ÍSÍ - Daði Rafnsson, fagstjóri afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi og doktorsnemi í sálfræði við HR
• Íþróttir og farsæld barna