Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Skráning hafin í Göngum í skólann

30.08.2023

 

Miðvikudaginn 6. september nk. verður hreyfiverkefnið Göngum í skólann sett af stað í sautjánda sinn.  Um er að ræða verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og samtarfsaðilum, sem hvetur börn, og nemendur almennt, til þess að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.


Á heimasíðunni Göngum í skólann má finna nánari upplýsingar, fréttir og fróðleik varðandi verkefnið sem og myndir frá fyrri verkefnum.  Hér er svo hægt að skrá skólann sinn til leiks.    

ÍSÍ hvetur alla skóla til að skrá sig og alla nemendur, sem geta, til að taka þátt í verkefninu.