Samantekt fyrir 3. keppnisdag á Smáþjóðaleikunum
Borðtennis:
Siglingar:
Keppni hélt áfram í dag. Veðrið reyndist keppendum erfitt þar sem hiti var mikill og aðstæður aðrar en heima en allir gerðu sitt besta. Kláraðar voru 3 keppnir og verður haldið áfram á morgun. Hér má finna stöðuna í optimist. Hér má finna stöðuna í ilca 6.
Skotfimi:
Jórunn Harðardóttir og Kristína Sigurðardóttir byrjuðu daginn á keppni í loftskammbyssu. Í undankeppninni fóru leikar þannig að Jórunn var önnur í 8-manna úrslit en Kristína náði því miður ekki inn. Jórunn náði sér ekki alveg á strik í úrslitunum og var önnur til að detta út. Eftir hádegi spiluðu svo Ívar Ragnarsson og Bjarki Sigfússon í loftskammbyssu. Bjarki komst ekki áfram en Ívar Ragnarsson var efstur inn í final og endaði svo á að vinna silfrið. Vel gert hjá Ívari!
Skvass:
Keppt var í 4-manna liðakeppni í dag og leikmönnum raðað í styrkleikaröð. Tveir riðlar eru á mótinu, 3 lið í hvorum riðli. Ísland mætti fyrst Mónakó og vann sannfærandi 3-1. Næst mættu þeir liði Möltu sem þeir töpuðu fyrir 0-4. Á morgun verður keppt við Lichtenstein og með sigri verður möguleiki á að spila um bronsverðlaun seinni part dags.
Sund
Í dag bætti Snæfríður Sól bætti ellefu ára gamalt Íslandsmet í 400m skriðsundi og sigraði í greininni hér á Smáþjóðaleikunum. Hún synti á 4:20,16 og bætti þar með íslandsmet Sigrúnar Sverrisdóttur, sem var 4:20,42. Snæfríður var einnig í sigursveit Íslands í 4x 200m skriðsundi þegar hún ásamt, Völu Dís, Kristínu Helgu og Freyju Birkis sigruðu í greininni á tímanum 8:26,33. Anton Sveinn sigraði í 200m bringusundi á tímanum 2;14,37. Karlasveitin synti 4x200m skriðsund og tryggðu sér bronsverðlaunin á tímanum 7:43,63.
Ylfa Lind Kristmansdóttir og Vala Dís Cicero tryggðu sér silfurverðalun í sínum greinum í dag. Ylfa synti 100m baksund á tímanum 1:04,80 og Vala synti 100m flugsund og bætti tíma sinn, þegar hún synti á 1:03,52. Símon Elías tryggði sér einnig silfurverðlaun í 100m flugsundi á tímanum 55;38 sem er bæting á hans besta tíma. Steingerður Hauksdóttir synti 100m baksund á tímanum 1:06,62. Þeir Guðmundur Leo og Bergur Fáfnir syntu 100m baksund, Bergur synti á tímanum 59;86 og Guðmundur á 59;83. Eva Margrét og Katja Lilja syntu 200m bringusund og bætti Katja Lilja tíma sinn, hún synti á tímanum 2.41,48, Eva synti á tímanum 2:40,38. Kristín Helga synti 100m flugsund á tímanum 1:04,75.
Snorri Dagur synti 200m bringusund á tímanum 2:22,37
Næst síðasti dagur mótsins hefst svo kl 10:00 í fyrramálið.
Keppt var í tvendarleik í dag í tennis og léku Sofia Sóley Jónasdóttir og Anton Jihao Magnússon á móti pari frá Andorra. Leikurinn tapaðist 2-0 (2-6, 4-6) en um hörkuleik var að ræða og stóðu Sofia og Anton sig vel. Tennisliðið hefur nú lokið keppni.
Ekki var keppt í dag í frjálsum eða júdó. Keppni heldur áfram í flestum greinum en hægt er að fylgjast með á heimasíðu leikanna hér.