Keppnisdagur hjá Sturlu, Snorra og Isaki
15.02.2022
Þrír Íslendingar keppa á Vetrarólympíuleikunum í Peking í nótt og í fyrramálið að íslenskum tíma, 16. febrúar.
Sturla Snær Snorrason keppir í svigi karla í Yanqing og hefst svigkeppnin kl. 02:15 í nótt að íslenskum tíma. Hann er með rásnúmerið 47 en alls eru 88 keppendur skráðir til leiks. Seinni ferðin er tímasett kl. 05:45 í nótt. Sturla Snær smitaðist af kórónuveirunni og hefur verið að jafna sig á þeim veikindum. Hann þurfti að hætta við þátttöku í stórsvigskeppni leikanna en er nú kominn á fulla ferð og klár í slaginn.
Klukkan 08:15 að íslenskum tíma verður síðan liðakeppni í sprettgöngu karla þar sem Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen verða á meðal keppenda.
ÍSÍ óskar íslensku keppendunum þremur góðs gengis.