Keppni í stórsvigi flýtt
![](/library/Myndir/Frettamyndir/DB3891B8-8E01-4CE6-8AFD-702EF972EFEB.jpg?proc=400x400)
Mánudaginn 7. febrúar verður keppt í stórsvigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Peking.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er meðal keppenda og er með rásnúmer 61 af 82 keppendum sem skráðir eru til leiks.
Búið er að flýta keppninni og hefst hún kl. 01:20 að íslenskum tíma. Síðari ferðinni hefur verið seinkað og hefst hún kl. 06:20 að íslenskum tíma. Ástæða þessara breytingar er að bruni karla var frestað og verður keppt í því á milli umferða í stórsvigi kvenna.