ÍSÍ auglýsir eftir liðsauka fyrir EYOF í Vuokatti
12.01.2022
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir aðila á aldrinum 20 til 25 ára sem brennur fyrir íþróttum og hefur áhuga á að verða hluti af íslenska hópnum sem fer á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Vuokatti í Finnlandi 19. til 26. mars 2022. Viðkomandi þarf að sjá um að miðla fréttum, myndum og öðru efni frá leikunum á heimasíðu og samfélagsmiðlum ÍSÍ og þarf að vera tilbúinn til þess að aðstoða fararstjóra með ýmis tilfallandi verkefni.
Viðkomandi þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
- 
    Geta unnið vel sjálfstætt 
 - Búa yfir góðri samskiptahæfni og geta unnið vel með fólki
 - Hafa góða færni í bæði ensku og íslensku
 - Hafa góða þekkingu á notkun og birtingu á samfélagsmiðlum
 - Geta tekið viðtöl við íþróttafólk til birtingar á samfélagsmiðlum
 - Geta klippt til myndbönd og myndir til birtingar á samfélagsmiðlum
 
Þetta er einstakt tækifæri til að upplifa ólympískan viðburð og fá fjölbreytta reynslu á einum af stærri vetraríþróttaviðburðum álfunnar. Hér er hægt að lesa nánar um viðburðinn.
Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Kristín Birna Ólafsdóttir – kristino@isi.is s. 6963028
Umsóknir berast á netfangið kristino@isi.is ekki seinna en 6. febrúar 2021
