Heimsmeistarar öldunga í badminton
06.12.2021
Elsa Nielsen og Drífa Harðardóttir urðu um síðastliðna helgi heimsmeistarar í tvíliðaleik kvenna á Heimsmeistaramóti Senior í Huelva á Spáni. Þær sigruðu par frá Kóreu í úrslitum og 23-21 og 21-8 í flokki 40-44 ára. Drífa varð einnig heimsmeistari í tvenndarleik í sama flokki með Jesper Thomsen frá Danmörku en þau sigruðu par frá Englandi 21-19 og 21-10.
Broddi Kristjánsson lenti í þriðja sæti í einliðleik í flokk 60-65 ára þannig að tvö gull og eitt brons er afrakstur íslenska hópsins á heimsmeistaramótinu þetta árið.
Frábær árangur hjá íslenska þríeykinu og óskar ÍSÍ þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Mynd/BSÍ